1. Almennt
- Fyrirtækið leggur áherslu á að vernda persónuupplýsingar viðskiptavina.
- Persónulegar upplýsingar, s.s. tölvupóstföng, heimilisföng, símanúmer, samskipti í tölvupósti eða aðrar persónuupplýsingar, verða ekki afhentar þriðja aðila nema með samþykki viðskiptavinar, samkvæmt lögum eða dómsúrskurði. Að frátöldu því sem kemur fram í lið nr. 6.
2. Netverslun
- Til að geta afgreitt pantanir þarf kaupandi að veita upplýsingar á borð við nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer.
- Þessar upplýsingar eru nauðsynlegar til greiðslu og afhendingar vöru.
- Ef greitt er með greiðslukorti fer kaupandi yfir á örugga greiðslusíðu viðurkenndrar greiðslumiðlunar. Kortaupplýsingar eru ekki unnar á vefsvæði Nautn.
3. Netföng og símanúmer
- Þegar kaupandi skráir sig í netverslunina eða á póstlista, er netfangið skráð á póstlista.
- Hægt er að afskrá sig hvenær sem er með því að smella á hlekk í tölvupósti.
- Netföng og símanúmer sem gefin eru upp í pöntun eru notuð fyrir samskipti sem tengjast viðskiptunum.
- Samskipti milli kaupanda og seljanda geta farið fram í gegnum tölvupóst eða síma með upplýsingum sem kaupandi hefur veitt.
4. Meðhöndlun upplýsinga
- Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem kaupandi veitir í tengslum við viðskipti.
- Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila nema þegar:
- það er nauðsynlegt til að veita þjónustu (t.d. til flutningsaðila sem þurfa heimilisfang og símanúmer),
- eða þegar krafist er samkvæmt lögum.
- Fyrirtækið selur aldrei persónuupplýsingar viðskiptavina.
5. Notkun í markaðs- og samskiptaskyni
- Persónuupplýsingar (s.s. búseta, aldur, viðskiptasaga) kunna að vera notaðar til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima síðunnar.
- Meðlimir geta hvenær sem er afskráð sig frá slíkum skilaboðum.
- Sjálfvirkar póstsendingar (t.d. yfirgefin karfa, eftirfylgni eftir vörukaup, skráning/afskráning af póstlista) eru sendar óháð því hvort netfang sé á almennum póstlista fyrirtækisins.
6. Notkun persónuupplýsinga í auglýsingaskyni
- Við kunnum að nota netfang, símanúmer eða aðrar tengiliðaupplýsingar til að búa til sérsniðna markhópa og sambærilega markhópa á auglýsingavettvöngum þriðja aðila, s.s. Meta (Facebook/Instagram) og Google.
- Þetta gerir okkur kleift að sýna viðeigandi auglýsingar fyrir viðskiptavini og ná til fólks með svipuð áhugamál.
- Áður en slíkar upplýsingar eru hlaðnar upp eru þær dulkóðaðar og notaðar eingöngu til að para saman við notendur á viðkomandi vettvangi. Upplýsingarnar eru ekki afhentar þriðja aðila í öðrum tilgangi.
- Ef fyrirtækið rekur fleiri en eitt vörumerki geta persónuupplýsingar verið notaðar í markaðsskyni fyrir þau vörumerki að því gefnu að vinnslan fari fram innan sama lögaðila.
- Viðskiptavinir eiga ávallt rétt á að mótmæla þessari vinnslu eða afturkalla samþykki sitt. Hafa skal samband við okkur á hallo@nautn.is til að nýta þennan rétt.
7. Réttindi viðskiptavina
- Kaupandi á rétt á að fá að sjá þær upplýsingar sem fyrirtækið hefur um hann.
- Kaupandi getur krafist leiðréttingar eða eyðingar upplýsinga án kostnaðar.
8. Öryggi greiðslna
Kortaupplýsingar eru ekki unnar eða vistaðar á vef Nautn. Allar greiðslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu sem hlotið hefur viðurkennda vottun frá greiðslumiðlun.
Sjá einnig um vefkökur.
Sjá einnig skilmála.