Ekki aðeins fyrir eldri konur
Ímyndaðu þér fallegt samspil af þrá, eftirvæntingu og nána tengingu við sjálfa þig eða maka. Útkoman á ekki að geta farið á neinn annan veg en að enda með unaði og fullnægingu. Hins vegar, án sleipiefna getur þetta yndislega samspil fljótt snúist upp í streitu, kvíða, óþægindi og jafnvel sársauka.
Ófullnægjandi rakastig í leggöngum er alls ekki bara vandamál hjá eldri konum heldur getur það haft mikil áhrif á konur á öllum aldri, af ýmsum ástæðum.
Kynheilbrigði kvenna byggir á góðu rakastigi
Hvers vegna þurfa konur í raun sleipiefni? Við skulum fara aðeins dýpra í hvers vegna. Í fyrsta lagi geta hormónabreytingar, eins og þær sem verða við tíðahvörf eða brjóstagjöf, leitt til minnkaðrar framleiðslu á náttúrulegu sleipiefni í leggöngum.
Konur sem eiga auðvelt með að blotna hafa samt sem áður ekki nægjanlega náttúrulega framleiðslu á sleipiefni til að viðhalda góðu rakastigi í leggöngum þegar kynlíf varir í lengri tíma. Að auki geta ákveðin lyf, streita, þreyta og jafnvel ofþornun haft áhrif á rakastig í leggöngum.
Sem betur fer er lausnin nokkuð einföld fyrir betra kynheilbrigði kvenna. Lausnin er sleipiefni! Hvort sem þú ert að njóta þín í einrúmi, með maka eða leikfélaga getur það aukið þægindi, ánægju og innilegri fullnægingu að nota sleipiefni. Það er eins og að færa innilegu augnablikin þín upp á næstu stig með meiri næmni, vellíðan og örvun.
Ekki hika við að kanna heim sleipiefna og upplifðu muninn sjálf!